[NP;
Clothes Off // Gym
Class Heroes ]
We have to take our clothes off
We have to party all night
And we have to take our clothes off
To have a good time
Oh no
Þessu var þokkalega
blastað oft á leiðinni heim frá bíladögum ég og Inga
einhverfar=D
Er búin að draga þetta alltof mikið á langin!!! Það er
náttúrulega möst að blogga um seinustu viku.. þar sem hún er bara
búin að vera snilld!
Við stelpurnar vorum
búnar að taka þá ákvörðun fyrir lööööngu að skella okkur á bíladaga
og að sjálfsögðu héldum við á þá á föstudaginn.. Ekki búin að
fá frí helgi í mánuð!! ég,Ása,Inga og Særún skelltum
okkur af stað um hann um 6 leytið eftir að við hefðum
splæst í eitt stykki bleika peysu í
rumfó,tjaldstóla,sokka,kókómjólk,turkis pepper sleikjó og
kleinur svo eitthvað sé nefnt.. við komum aðeins
við í Mosó skelltum bensíni og svona á kaggan..
Svo lögðu,Ísa,Lilja,Anna og Bylgja af stað um 8 leytið.. við
vorum mættar illa ferskar á Akureyri svo eftir
alveg dágóðan akstur og einu stoppi í Staðarskála þar sem
pöntuninni okkar var alveg þokkalega fokkað upp.. en við létum það
ekkert á okkur fá!=D



Ég einbeitt að
borða
Ása
krútt
Inga og Særún pís!
Eins og ég sagði mættum við þarna þokkalega góðar á
því.. Biðum í svona 2 tíma í röð til að borga okkur inn á
tjaldsvæðið.. var farin að sjá fyrir mér að við mundum þurfa
að crasha í röðinni bara.. en svo loks kom röðin að
okkur.. Stelpurnar búnar að taka frá fyrir okkur tjaldstæði
svo að það var ekkert annað í myndinni en að skella tjaldinu
upp.. tók enga stund.. við náttúrulega búnar að æfa okkur
2 dögum áður og svona.. gekk bara alveg eins og í sögu.. Skömmu
seinna mættu Lilja og co á svæðið.. Ísa og Anna alveg vel í því
haha kjánar.. Við skelltum nýju tjaldstólunum okkar fyrir
utan tjaldið og það var bara byrjað að hella í sig.. Allir
komnir vel í það.. drukkum, sungum, gítarstemming, fótbolti sem
leiddist út í glímu.. ófáir marblettirnir á öllum sem tóku þátt í
honum haha.. svo voru bara allir þarna á svæðinu í ruglinu.. við
vöktum öll þarna til 9 og þá fóru flestir að sofa eða í
sund.. Ísa var samt ruff gella og var vakandi haha.. Ég sofnaði í 3
peysum og úlpu eftir að ég hafi látið Ingu vita að ég væri
partýanimal og var búin að syngja Suicidal lagið fyrir alla í
kringum okkur.. Ég vaknaði í algjöru svitabaði þar sem
það var 20 stiga hití úti.. og það var þá bara tekið taaaaan á
þetta og ég var dugleg að teikna tattoo á fólk með tússpenna haha
gaddavírinn að meika það!



OOOOOF GAMAN!!=D
Svo var líka tekið viðtal við mig og Ingu.. verið að
spyrja okkur út í einhver slagsmál og eitthvað sem fór víst alveg
framhjá okkur en svo sést líka glitta í Önnu Sóley á
brjóstarhaldaranum í viðtalinu haha
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338336/1
Eftir tanið skelltum við okkur í sundlaugina að þrífa
okkur.. þá voru Jóhannhhhhh og Torfi komnir á Akureyri og ákváðum
við að smella okkur á Greifan og fengum okkur þar dýrindis máltíð
þar sem við vorum bara búnar að drekka kókómjólk.. sem var svona
semí drykkur ferðarinnar fyrir utan áfengi að sjálfsögðu

ÓJééé
Eftir matin var ákveðið að leggja sig.. búa sig undir
næsta djamm! Það var þó stuttur blundur sem endaði í því að ég og
Inga tókum það að okkur að syngja inni í tjaldi og þá mest
uppáhalds lagið okkar Beautiful girls með Sean Kingston sem var
klárlega að meika það sem lag ferðarinnar!! Þvílík texta snilld..
mjög svo útpældur texti þar á ferð.. þokkalega magnað lag! Fólki í
kring var þó ekki skemmt svo það var bara ákveðið að taka drykkjuna
á þetta.. Söfnuðumst nokkur saman fyrir framan tjaldið okkar í
tjaldstólunum mögnuðu.. þó voru þeir færri en kvöldið áður þar sem
nokkrir af þeim lifðu ekki fyrra kvöldið af.. Þarna sátum við og
sungum hástöfum, borðuðum lakkrís,cheerios,snakk og maltesers..
þokkalega sátt með lífið! Alli joinaði svo og spilaði á gítarinn
við mikin fögnuð þeirra sem sátu.. hann datt út á tímum en það lét
engin það á sig fá og var bara feit stemming í fólkinu.. Svo
dreifðust allir út um allt.. rólurnar voru vinsælar, partýtjald
strákanna, klósettin og svo tóku nokkrir fyllerís grátskammtin út
og einnig ofurölvan.. ég lagði mig víst eftir að hafa verið að
hugga Heiðdísi og dó.. vá hvað ég er ennþá svekkt yfir að hafa
sofnað!!!! En Inga fór víst sömu leið og dó á milli tjalda! haha
fólk algjörlega í ruglinu.. fokking snilld samt við stelpurnar
klárlega hressar og peysurnar voru þokkalega að meika
það=D



Inga að
reyna komast í tjaldið
Flott þetta
Særún
Alli dottinn út í smá stund haha



Doing
Mr.Napkinhead! Krúttlega mynd af
stelpunum Ása camera man!
Daginn eftir vöknuðu allir drullu þunnir.. við stelpurnar
ávallt ferskar.. kom í ljós eftir að við blésum ég væri eina sem
var ökuhæf haha.. það var skellt sér á kók í gleri.. mættum svo
aftur upp á tjaldsvæði og þá heldur nokkrir áfram að drekka og svo
var tekið gítarinn á þetta aftur, sungið og samið lag um
þynnkudruslur og skemmt sér meðan allir voru að ganga frá.. of
gaman hjá okkur!



Eins og sjá má!
Svo þegar við vorum svona nánast einu manneskjurnar eftir
þá fannst okkur komin tími á að leggja í hann! haha



OF GOTT DJAMM!
Við komum þarna til
að djamma ekki kúra! Ójééé..
Þó svo að þetta hafi
verið snilld var þetta ekki nóg þannig að þegar við mættum í
Reykjavík ákváðum við að kíkja niður í bæ á stemmarann.. hittum
Eyrúnu fola og svona..

Þessi helgi gleymist sko seint!!! SNILLDIN ein!
Takk fyrir hana
folar;*
Það er klárlega
rímats næstu helgi sem er fyrsta helgin í júlí.. Akureyrar reunion
tekið á þetta.. hellað djamm!!!
Vikan fór svo bara í
vinnu.. var svo veik tvo daga.. gerði þá lítið annað en að liggja
upp í rúmi og horfa á Grey's Anatomy.. er algjörlega húkt.. var
búin að horfa á 1 seríuna og tók núna 2 seríuna.. þannig sú 3 er
bara næst=D

Svo á föstudaginn grilluðum við nokkrar hjá Ingu og fengum
okkur smá í tánna! Vorum þar algjörlega að brillera í
drykkjuleikjum og rugli.. heavy kósý stemming.. þaðan litum við í
eitthvað partý.. Ísa og Eyrún kíktu smá í bæinn og við hinar
rúntuðum meðan hinar voru ennþá í partýinu.. Svo var leiðinni bara
haldið heim þar sem það var vinna daginn eftir.. GUBB!! Myndir að
koma inn á næstunni;D
Vann til 8.. þá kíktum ég og Særún í smá krónutjill
sem var án efa flipp og var ég eina manneskjan á svæðinu sem var
edrú haha.. Við hittum stelpurnar svo hjá Gróttuvitanum og ég er
ekki frá því að þynnkan hafi komið um kvöldið.. er það hægt? Var
alveg handónýtt og eftir stutt stopp hjá Ingu var leiðinni haldið
heim að sofa og ég og Ísa sváfum smá yfir okkur.. er ennþá ekki
búin að jafna mig haha greinilegt að ég er ekki eins mikið
partýanimal og ég vildi halda fram seinustu helgi.. vantar svefn en
nenni ekki.. er farin í Thai herbergið hennar Ingu.. einum of langt
blogg á kjentinum

Aleeeeee;D;*